|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[íslenska] |
gufubað
hk.
|
|
[skilgr.] bað í heitri vatnsgufu;
[skýr.] þekkt meðal ýmissa þjóða frá fornöld, m.a. stunduð í baðhúsum Rómverja og í Austurlöndum nær (sbr. tyrkneskt bað). Gufuböð fyrir almenning voru algeng í Evrópu á miðöldum en var víða lokað á 16. öld því þau voru talin gróðrarstía kynsjúkdóma. Eftir 1960 breiddust þau aftur út frá Finnlandi og nefndust þá sána. Á Íslandi þekkist gufubað frá fornu fari. Það nefndist þurrabað þegar byggt var yfir hveri og þar sem gufur stigu upp úr jörðu, t.d. á Sturlureykjum í Borgarfirði og Reykjahlíð við Mývatn. Á Íslandi þekktust einnig reykstofur þar sem gufan fékkst með því að stökkva vatni á steina sem voru hitaðir yfir eldi en þeim fækkaði vegna eldsneytisskorts í lok miðalda S.e. íslenski torfbærinn; sána.
|
[þýska] |
Dampfbad
|
|
|
[enska] |
steam bath
|
|
|
[danska] |
dampbad
|
|
|
|
|
|
|