|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[íslenska] |
gullinsnið
hk. |
|
[skilgr.] skipting línustriks í tvo hluta þannig að hlutfallið milli stærri hlutans og hins minni sé jafnt hlutfallinu milli alls striksins og stærri hlutans;
[skýr.] einnig notað um hlutfallið sjálft (1,618) og hlutfallið milli minni hlutans og þess stærri (0,618). Gullinn rétthyrningur er þannig að hlutfallið milli hliða hans er gullinsnið. Forn-Grikkir töldu hann fegurstan allra rétthyrninga og hann kemur víða fyrir í byggingar- og myndlist, einkum í list endurreisnartímans
|
|
|
|
|
|