|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[íslenska] |
hvelfing
kv. |
|
[skilgr.] bogamyndað þak eða loft yfir byggingu, ýmist hlaðið úr steini eða múrsteini og þunginn borinn af veggjum og súlum
[skýr.] Einfaldasta gerð hvelfinga er tunnuhvelfing með hálfhringlaga fleti. Þegar tvær tunnuhvelfingar skerast kallast það krosshvelfing. Rifhvelfing er krosshvelfing með hlöðnum, berandi rifjum í skurðlínum hvelfinganna. Ýmis afbrigði eru til af rifhvelfingum og er þá berandi rifjum fjölgað. Þær mynda ýmis munstur og kallast skv. því t.d. stjörnuhvelfing, sprotahvelfing eða trektarhvelfing. Stallahvelfing/fölsk hvelfing er hlaðin þannig að hvert steinlag er lagt innar en það sem undir er þar til hún lokast að ofan. Stallahvelfingar eru ýmist kúpul- eða tunnulaga.
|
|
|
|
|
|