|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[íslenska] |
steinsteypa
kv.
|
|
[skilgr.] hörðnuð blanda af sementi, sandi möl og vatni, notuð sem byggingarefni;
[skýr.] eiginleikar steypu breytast með blöndunarhlutföllum og vinnsluaðferðum. Hún fær fullan styrk á löngum tíma og hefur mikið þrýstiþol en lítið togþol. Ýmiss konar íblendi er notað til að ná fram sérstökum eiginleikum, t.d. auknum styrk. Til að auka togþol í steyptum byggingarhluta má járnbenda steypu með bendistáli (stöngum eða neti); þekkt á tímum Rómverja en notkun hennar varð almenn eftir uppfinningu portlandsements 1824. Járnbending steypu var fundin upp í Frakklandi um miðja 19. öld. S.e. léttsteypa; strengjasteypa
|
[þýska] |
Beton
|
|
|
[enska] |
concrete
|
|
|
[danska] |
beton
|
|
|
|
|
|
|