[skilgr.] Löng og mjó lægð í djúpsjávarbotni og með bröttum hlíðum, venjulega með fram meginlandsströnd eða langri röð af eyjum.
[skýr.] Undirdjúpsálar eru víða um 2000 metrum dýpri en nærlægur sjávarbotn. Í þeim er mesta sjávardýpi, sem mælst hefur. Þeir geta náð þúsundum kílómetra að lengd. Sjá sökkbelti.