|
[skilgr.] Gosberg, sem oft myndast, ef hraunkvika rennur í vatni og storknar snögglega. Verður þá til safn af bólstrum, sem minna á troðfulla poka. Hver bólstur er stuðlaður, og stefna stuðlarnir sem geislar í allar áttir út frá miðju hans. Ytra borð bólsturs er glerkennt.
[skýr.] Basaltbólstrar eru algengir, en líparítbólstrar sjaldgæfir.
|