[skilgr.] Tiltekin mörk í jörðu niðri, þar sem stökkbreyting verður á hraða jarðskjálftabylgna. Mörkin miðast við það, að neðan þeirra fari P-skjálftabylgjur 8 km á s.
[skýr.] Mörkin eru á 20-70 km dýpi undir meginlöndum, en á 5-10 km dýpi undir botni úthafa. Undir Íslandi eru aðstæður afbrigðilegar í þessu efni. Moho-mörk eru kennd við A. Mohorovicic, króatískan jarðeðlisfræðing (1857-1936).