|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[enska] |
linguistic atrophy
|
|
|
[íslenska] |
málrýrnun
kv.
|
|
[skilgr.] Þegar tiltekið mállegt fyrirbæri fer að veiklast, og hverfur jafnvel, kallast það MÁLRÝRNUN.
[dæmi] Í íslensku hafa ýmsar beygingar rýrnað og horfið að mestu leyti. Þeirra má þó enn sjá stað í föstum orðtökum, t.d. „að koma einhverjum í opna skjöldu“ þar sem skjöldu er forn beygingarmynd af orðinu skjöldur og væri í nútímamáli skildi. Annað dæmi er að „hverfa eins og dögg fyrir sólu“ þar sem þágufallsmyndin sólu er löngu horfin úr málinu og er nú aðeins sól.
|
|
|
|
|