|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[enska] |
i-umlaut
|
|
|
[íslenska] |
i-hljóðvarp
hk.
|
|
[skilgr.] Það er nefnt i-HLJÓÐVARP þegar tiltekið sérhljóð breytist í annað fyrir áhrif frá sérhljóðinu /i/ síðar í orðinu. Þetta hljóðvarp hafði mikil áhrif á íslensku og þess sér enn stað í beygingum orða og ef skyld orð eru borin saman (þótt hljóðvarpsvaldurinn /i/ sé oft fallinn brott).
[dæmi] Dæmi (hljóð sem komu fram fyrir áhrif frá i-hljóðvarpi feitletruð - upprunalegra hljóð kemur fram í orðinu eða orðmyndinni sem gefin er innan sviga): gleði (sbr. glaður), þynnri (sbr. þunnur), hæsi (sbr. hás), hýsi (sbr. hús), mýs (sbr. mús).
|
|
|
|
|