[íslenska] |
önghljóð
hk. |
|
[skilgr.] Við myndun ÖNGHLJÓÐA er þrengt að loftstraumi sem fer út um munn. Þrengingin getur verið á mismunandi stöðum.
[dæmi] Stafirnir f, v, þ, ð, s og fleiri tákna oft önghljóð. Við myndun f, v er þrengt að loftstraumnum við varir, við myndun þ, ð er þrengt að honum milli tungubrodds og tanna og við myndun s er þrengt að honum við tannberg.
|
|