Orðabanki íslenskrar málstöðvar
          

Leit
Orðasöfn
Um orðabankann
Hafðu samband

   
Innskráning
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið.
Úr orðasafninu Stjórnmálafræði    
[íslenska] Fríverslunarsamtök Evrópu
[skýr.] EFTA var ekki tollabandalag (með sameiginlega ytri tolla), heldur fríverslunarsvæði þar sem aðildarlöndin felldu niður verndartolla hvert gagnvart öðru, aðallega af iðnaðarvörum, en héldu sínum sjálfstæðu tollum gagnvart öðrum ríkjum. Fríverslunarsamtök Evrópu voru stofnuð árið 1960 með svokölluðum Stokkhólmssamningi. Upphaflega áttu Austurríki, Bretland, Danmörk, Noregur, Portúgal, Sviss og Svíþjóð aðild að samtökunum. Finnland fékk aukaaðild árið 1961 og fulla aðild 1986, Ísland gekk til liðs við EFTA árið 1970 og Liechtenstein árið 1991. Bretland og Danmörk gengu í Evrópusambandið árið 1973, Portúgal árið 1986 og Austurríki, Finnland og Svíþjóð árið 1995. Nú eru því fjögur ríki í EFTA: Ísland, Liecthenstein, Noregur og Sviss. Ísland, Liechtenstein og Noregur eiga aðild að EES (svokölluð EES/EFTA ríki) en Sviss hafnaði aðild að samstarfinu í þjóðaratkvæðagreiðslu 1992 og hefur tvíhliða viðskiptasamninga við ESB.
[enska] European Free Trade Association , EFTA
Aftur í leitarniðurstöður
Leita aftur