|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[enska] |
decolonization
|
|
|
[íslenska] |
afnýlendun
kv.
|
|
[skýr.] Atburðarás þar sem Evrópuríki létu lausar nær allar nýlendur sínar í Asíu, Afríku og Ameríku eftir seinni heimsstyrjöld. Við afnýlendunina hefur tala sjálfstæðra ríkja nær þrefaldast frá 1945. Orsakir afnýlendunar voru einkum máttleysi nýlenduvelda eftir stríðið, vaxandi styrkur þjóðernissinnaðra hreyfinga í nýlendunum og beinn og óbeinn stuðningur Bandaríkjamanna og Sovétmanna. Hernaðarátök milli nýlenduvelda og annarra er hindra vildu afnýlendun annars vegar og sjálfstæðissinna í nýlendum hins vegar urðu mest í Indókína, Alsír og nýlendum Portúgala í Afríku.
|
|
|
|
|