|
[skilgr.] Innvaxin grein í viðnum (EN 844-8.1 og 9.1).
[skýr.] Mælireglur: Kvistur er metinn eftir lögun sinni eða afstöðu við aðra kvisti; sjá 2.1. Kvistlögun og 2.5.2 Kvisthópur. Eftirfarandi skýringar eru notaðar: d: Kvistastærð í mm a: Minnsta þvermál í mm b: Stærsta þvermál í mm Krafan er sett samkvæmt lögun kvistsins, ástandi, sprungu, lit og hópun; Sjá 2.1 Kvistlögun, 2.2 Ástand kvista, 2.3 Sprunginn kvistur, 2.4 Litur á kvistum og 2.5 Innbyrðis afstaða milli kvista. Uppbótarreglur: Ef samanlögð stærð kvista er minni en leyfilegt hámark, leyfist aukning á kvistum á lengdareiningu þar til samanlagt leyfilegt þvermál næst (EN 1310).
|