|
[skilgr.] skilyrt svörunar-tilraun, kennd við Pavloff
[skýr.] Áreiti, sem í upphafi er hlutlaust, er hvað eftir annað látið fylgja óskilyrtu áreiti, uns það hlýtur þá svörun, sem hið óskilyrta áreiti vakti í öndverðu. Matargjöf til tilraunadýrs er óskilyrt áreiti og vekur hjá því munnrennsli, sem þá kallast ó[skilyrt svörun]; sé bjölluhljómur, sem annars er hlutlaus, sífellt látinn fylgja matargjöf, vekur hann að lokum sömu svörun, munnrennsli, þótt engin matargjöf fylgi, og kallast hún þá skilyrt svörun, en bjölluhljómurinn skilyrt áreiti
|