|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Myndlist
|
|
|
[danska] |
Jellingstil
|
|
|
[enska] |
Jellinge style
|
|
|
[íslenska] |
Jalangursstíll
|
|
[skilgr.] norrænn skreytistíll frá víkingaöld. Tíðkaðist um 870-1000, einkum í Skandinavíu, í víkingabyggðum á N-Englandi og á eynni Mön
[skýr.] J er nefndur eftir silfurbikar úr haugi í Jalangri (Jellinge) í Danmörku. J einkennist af dýrsmynd sem dregin er með tvöföldum útlínum. Dýrið er með sveigðan, hreistraðan búk og snýr höfði til hliðar. Það hefur hringaða rófu, lendar með hvirfingum og er gjarnan sýnt fýla grön.
[dæmi] Á Ísl. hafa fundist nokkrir munir í J, til dæmis döggskór, kúptar og kringlóttar nælur og kinga.
|
|
|
|
|