Orðabanki íslenskrar málstöðvar
          

Leit
Orðasöfn
Um orðabankann
Hafðu samband

   
Innskráning
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið.
Úr orðasafninu Myndlist    
[íslenska] Spazialismo
[sh.] nývíddarstefna
[skilgr.] (úr ít. spaziale, sem lýtur að rými) hreyfing í myndlist stofnuð í Mílano 1947 af argentínsk-ítalska listamanninum Lucio Fontana
[skýr.] Hugmyndir s voru settar fram í stefnuyfirlýsingum, m.a. í „Manifesto Blanco” árið 1946, þar sem listamenn voru hvattir til að hverfa frá tvívíðum fleti málverksins og opna nýjar víddir í myndlistinni. Markmið s var að afmá mörkin á milli hinna ýmsu listgreina með því að sameina þætti eins og liti, hljóð, rými, hreyfingu og tíma inn í eitt sameiginlegt listform. Lögð var áhersla á samstarf, einkum við uppfinninga- og vísindamenn og nýtingu á nýrri tækni eins og neonljósum og sjónvarpi.
[dæmi] Helsti forvígismaður s var Lucio Fontana en meðal annarra fylgismanna voru Giovanni Dova og Roberto Crippa.
[enska] Spazialismo
[sh.] Spatialism
[danska] Spazialismo
[sh.] spatialisme
Leita aftur