Orðabanki íslenskrar málstöðvar
          

Leit
Orðasöfn
Um orðabankann
Hafðu samband

   
Innskráning
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið.
Úr orðasafninu Myndlist    
[danska] barok
[enska] Baroque
[íslenska] barokk
[skilgr.] stíll í myndlist, arkitektúr, skreytilist, tónlist og bókmenntum sem þróaðist í Róm á tímum gagnsiðbótar og var ráðandi stíll í V-Evrópu frá því um 1590 til um 1750 og barst einnig til Ameríku
[skýr.] Orðið b er líklega dregið af portúgalska orðinu „barroco” (óregluleg perla) og var í fyrstu notað í neikvæðri merkingu vegna ýktra forma og íburðar sem einkenna b. Í höggmyndalist var lögð áhersla á svellandi form og dramatísk átök, í málverki ber mjög á skrautlegum litum og skörpum andstæðum ljóss og skugga og í byggingarlist var mikið lagt upp úr samhverfu, ofhlæði og ýktum klassískum formum. Einkennandi fyrir b er samþætting byggingarlistar og myndlistar og blekkingamyndir, trompe-l´oeil, í hallar- og kirkjuhvelfingum. b sameinaði andóf gegn maníerisma og löngun til að skapa trúarlega list sem höfðaði til fjöldans. b hefur verið skipt upp í tímabil, einkum á Ítalíu, og er þá talað frumbarokk, hábarokk og síðbarokk.
[dæmi] Verk eftir málarann Peter Paul Rubens, myndhöggvarann Gian Lorenzo Bernini og arkitektinn Francesco Borromini.
Aftur í leitarniðurstöður
Leita aftur