Orðabanki íslenskrar málstöðvar
          

Leit
Orðasöfn
Um orðabankann
Hafðu samband

   
Innskráning
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið.
Úr orðasafninu Myndlist    
[íslenska] arabeska
[skilgr.] (úr ít. arabesco, arabískur) íburðamikið skreytimunstur fléttað úr blómum, blöðum og bogalínum, upprunnið meðal hellenískra handverksmanna í Litlu-Asíu
[skýr.] Á 11. öld var notkun a orðin almenn meðal íslamskra listamanna en vegna banns við manna- og dýramyndum var fuglunum, sem voru upphaflega hluti af skreytinu, sleppt. a varð síðan hefðbundinn þáttur í íslamskri skreytilist og var tekin upp í evrópskri endurreisnarlist og klassísisma.
[danska] arabeske
[enska] arabesque
Leita aftur