|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Myndlist
|
|
|
[íslenska] |
bókverk
|
|
[skilgr.] myndverk þar sem eiginleikar bókarinnar eru notaðir í myndlistarlegum tilgangi
[skýr.] b eru framleidd af listamönnum og eru yfirleitt gefin út í takmörkuðu, oftast tölusettu, upplagi en geta þó verið einstök. Margvísleg tækni hefur verið nýtt við gerð b og er innihaldið ýmist myndir eða textar eða hvort tveggja. Blaðsíður sem hægt er að fletta einkenna flest bókverk.
[dæmi] Gerð b var stór þáttur í listsköpun ítalskra og rússneskra fútúrista og var tekin upp á ný á sjötta áratugnum af listamönnum á borð við Ed Ruscha og Dieter Roth. Meðal íslenskra listamanna sem hafa fengist við gerð b eru Brynja Baldursdóttir og Daði Guðbjörnsson.
|
|
|
|
|
|