|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Myndlist
|
|
|
[íslenska] |
engilsaxnesk list
|
|
[skilgr.] samheiti yfir list á Englandi frá síðari hluta 5. aldar er Germanir hófu innrás i landið til hernáms Normanna árið 1066
[skýr.] e einkennist í upphafi af samruna þjóðflutningaaldarlistar og keltneskrar list með flóknum mynstrum, spírölum, dýramyndum og björtum litum. Síðar gætti áhrifa víkingaaldarlistar, einkum á málmsmíði, og karlungalistar á handritalýsingar.
[dæmi] e birtist m.a. í skartgripum, skrautmunum, kirkjubyggingum og steinkrossum eins og í Ruthwell krossinum frá 8. öld. Handritalýsingar frá 10. og 11. öld eru þekktustu dæmin um e, t.d. handritið: Benedictional of St Æthelwold frá því um 980. Áhrifa e gætir einnig í Bayeux-reflinum frá því um 1066–97.
|
|
|
|
|
|