Orðabanki íslenskrar málstöðvar
          

Leit
Orðasöfn
Um orðabankann
Hafðu samband

   
Innskráning
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið.
Úr orðasafninu Tölvuorðasafnið (5. útgáfa 2013)    
[íslenska] fjölgrunnakerfi hk.
[skilgr.] Grunntalnakerfi þar sem sætin geta haft mismunandi grunntölu.
[skýr.] Sjá einnig eingrunnskerfi.
[dæmi] Í tilteknu talnaritunarkerfi tákna þrír tölustafir, sem standa saman, klukkustundir, margfeldi af 10 mínútum og mínútur. Ef mínúta er tekin sem eining verða vægi sætanna 60, 10 og 1 og grunntala annars sætis er 6 og þriðja sætis 10. Sambærilegt talnaritunarkerfi, þar sem einn tölustafur táknar daga og tveir stafir klukkustundir, getur ekki kallast grunntalnakerfi því að hlutfall af vægi fyrsta og annars sætis er ekki heil tala. Í því talnaritunarkerfi merkir til dæmis 213 tvo daga og þrettán klukkustundir og hlutfallið af vægi fyrsta og annars sætis er 2,4.
[s.e.] eingrunnskerfi, grunntala, grunntalnakerfi, heil tala, hlutfall, sæti, talnaritunarkerfi, tölustafur, vægi
[enska] mixed radix notation
Aftur í leitarniðurstöður
Leita aftur