|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Lögfræðiorðasafnið
|
|
|
[íslenska] |
heimastjórn
|
|
[skilgr.] Fyrirkomulag á landsstjórn, með auknum landsréttindum og nokkru sjálfstæði í vissum greinum, er staðfest var með stjórnarskrárbreytingu frá 1903 sem gekk í gildi árið eftir.
[skýr.] Ráðuneytið fyrir Ísland í Kaupmannahöfn var lagt niður en Stjórnarráði Íslands komið á fót í Reykjavík, undir stjórn íslensks ráðherra (en ráðherrunum var síðar fjölgað). Með stofnun h. var [framkvæmdarvaldið í reynd flutt inn í landið. Tímabili h. lauk 1. desember 1918 þegar Ísland varð frjálst og fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku.
] |
|
|
|
|