|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Lögfræðiorðasafnið
|
|
|
[íslenska] |
hjónaband
|
|
[skilgr.] Samband tveggja einstaklinga með lögbundnu og formlega staðfestu samkomulagi um að eyða öllu lífinu saman og deila allri ábyrgð á heimili og börnum sín á milli.
[skýr.] Fólk getur gengið í h. hjá presti, sýslumanni eða forstöðumanni skráðs trúfélags hér á landi. Reglur erfðalaga um makaerfð (lögarf maka) gilda ekki nema um hafi verið að ræða formlegt hjónaband eða staðfesta samvist lögum samkvæmt. Sjá nánar hjúskaparlög 31/1993.
|
|
|
|
|