|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Lögfræðiorðasafnið
|
|
|
[íslenska] |
hreppur
|
|
[skilgr.] Stjórnunareining og um leið samábyrgðarsvæði varðandi framfærslu þurfandi manna og um ýmsa samvinnu íbúanna; jafnframt þinghá (með föstum þingstað) allt frá fornu fari fram til síðari tíma, en ekki lengur.
[skýr.] Margt bendir til að hreppaskipan hafi upphaflega verið komið á snemma á þjóðveldisöld en hlutverk h. breyttist nokkuð eftir því sem aldir liðu, m.a. varðandi hlutverk hreppstjóra (sem fyrrum voru tveir eða fleiri í hverjum h. en síðar lengi einn í hreppi). Sjá einnig hreppstjórainstrúx. Íslandssaga A-Ö.
|
|
|
|
|