Orðabanki íslenskrar málstöðvar
          

Leit
Orðasöfn
Um orðabankann
Hafðu samband

   
Innskráning
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið.
Úr orðasafninu Lögfræðiorðasafnið    
[íslenska] ráðherra
[skilgr.] Sá sem á sæti í ríkisstjórn.
[skýr.] R. fara með æðstu miðstjórn innan stjórnsýslunnar. Þeir fara í reynd með það framkvæmdarvald sem forseta Íslands er formlega veitt í stjórnarskránni og bera ábyrgð á öllum stjórnsýsluathöfnum sem framkvæmdar eru í ráðuneytum þeirra. Embættisheitið r. var tekið upp með tilkomu heimastjórnar 1. febrúar 1904. Æðstu stjórnendur ráðuneyta konungs í Kaupmannahöfn (frá 1848) voru hins vegar nefndir ráðgjafar, en heitið r. þótti samræmast betur því aukna sjálfstæði sem fylgdi hinni nýju stjórnskipan. Sjá einnig Íslandsráðgjafi.
Aftur í leitarniðurstöður
Leita aftur