Orðabanki íslenskrar málstöðvar
          

Leit
Orðasöfn
Um orðabankann
Hafðu samband

   
Innskráning
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið.
Úr orðasafninu Lögfræðiorðasafnið    
[íslenska] Stjórnarráð Íslands
[skilgr.] Æðsta stjórnstöð framkvæmdarvalds ríkisins, stjórnarskrifstofur ráðherra.
[skýr.] S. var stofnað með tilkomu heimastjórnar 1904 og hefur síðan haft aðsetur í Reykjavík. S. var upphaflega skipt í þrjár deildir eða skrifstofur. Árið 1921 var tekið upp heitið ráðuneyti í stað deildar í S. og starfaði síðan hvert ráðuneyti sjálfstætt undir umsjá hlutaðeigandi ráðherra. Ráðuneytum fjölgaði síðar en samheiti ráðuneytanna hefur síðan verið S. eins og staðfest er í lögum 115/2011.
Aftur í leitarniðurstöður
Leita aftur