|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Myndlist
|
|
|
|
[danska] |
Borrestil
|
|
|
[íslenska] |
Borróstíll
|
|
[skilgr.] norrænn skreytistíll frá víkingaöld. Tíðkaðist um 840-980 og breiddist út með víkingum allt frá Rússlandi til Íslands
[skýr.] B dregur nafn sitt af af gripum úr haugfundi frá Borre á Vestfold í Noregi. Helstu myndefni eru hring- og slönguskreytingar, dýr með höfuð sem vísa aftur og borðalaga gripdýr.
[dæmi] Á Íslandi hafa fundist ýmsir munir frá landsnámsöld sem eru skreyttir í B, s.s. kúptar nælur, þríblaðanælur, kingur, beltissprotar og döggskór.
|
|
|
|
|