|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Myndlist
|
|
|
|
[enska] |
lithography
|
|
|
[íslenska] |
steinþrykk
|
[sh.] |
steinprent
|
[sh.] |
litógrafía
|
|
[skilgr.] grafísk flatþrykksaðferð fundin upp í lok 18. aldar. Afþrykkið nefnist líka s
[skýr.] Í s er mynd teiknuð með feitri krít eða bleki á slípaðan kalkstein. Steinninn er síðan vættur með sýru sem ætir hreina fleti og gerir þá vatnsdræga. Teikningin er þvegin af með terpentínu og steinninn bleyttur með vatni sem smýgur inn í hann þar sem hann var ættur en fitan úr blekinu/krítinni hrindir vatninu frá sér. Þegar feitri prentsvertu er valsað yfir steininn sest hún á feitu myndfletina en hrekkur af þeim röku. Myndin er síðan þrykkt á pappír í pressu. Í stað kalksteins er hægt að nota sink- eða álplötu (offset). Alþjóðlega heitið litography er úr gr. lithos, steinn, og grafein, skrifa.
|
|
|
|
|