[íslenska] |
stafverk
hk. |
|
[skilgr.] byggingarlag í timburhúsagerð í NV-Evrópu á miðöldum, einkum á Norðurlöndum;
[skýr.] byggt upp af lóðréttum stöfum, sívölum eða ferköntuðum, sem felldir voru ofan á aursyllu. Að ofan voru lagðar staflægjur eða syllur og þær felldar í gróp á stöfunum. Í bilin á milli voru síðan felldar lóðréttar þiljur í gróp; var algengt í íslenska torfbænum í frumstæðri mynd. Dæmi um stafverk eru norsku stafkirkjurnar og bænhúsið að Gröf á Höfðaströnd. Sbr. bindingsverk, stokkverk, bolverk.
|
[s.e.] |
aursylla, bolverk, stokkverk, bindingsverk
|
|