[skilgr.] Varúðarreglan kemur fram í Rio-samþykkt Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1992. Varúðarreglan kveður á um að ekki skuli ráðast í framkvæmd sem kann að hafa alvarleg áhrif á umhverfið nema að sýnt sé fram á að hún hafi ekki slík áhrif. Tengd hugtök: Rio-samþykktin, mengunarbótareglan, nytjagreiðslureglan, mat á umhverfisáhrifum