|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
|
[enska] |
column
|
|
|
[íslenska] |
súla
kv.
|
|
[skilgr.] sívöl, lóðrétt burðarstoð með fótstalli og súluhöfði eða aðeins með súluhöfði, gerð úr tilhöggnum steinum, einsteinungi, timbri eða öðru efni;
[skýr.] styður undir þverhlað, boga og hvelfingu eða boga og hvolf í klassískri byggingarlist og bita í nútímabyggingarlist. Hjá Forn-Grikkjum voru þrjár súlnareglur eftir lögun súlna, stíl höfuðs og fótstalls, dórískur, jónískur og korinþískur stíll. Etrúskar og Rómverjar tóku í arf grísku súlnareglurnar og bættu við toskönskum og samsettum stíl. Á 19. öld var farið að gera s úr steypujárni og á 20. öld úr steinsteypu og stáli.
|
[þýska] |
Säule
|
|
|
|
|
|
|