[íslenska] |
landsbókasafn
hk. |
[sh.] |
þjóðbókasafn
hk.
|
|
[skilgr.] Landsbókasöfn, þ.e. þjóðbókasöfn, gegna bæði hlutverki rannsóknarbókasafna og vísindabókasafna jafnframt því sem undir þau heyrir þaulsöfnum á útgáfu heimalandsins og þjóðarinnar og þess sem gefið er út varðandi land og þjóð á erlendum vettvangi, og hér er því vísað á milli þessarar safnategundar og rannsóknarbókasafna og vísindabókasafna, ennfremur mynda háskólabókasöfn víða um heim samsteypusöfn með landsbókasöfnum og eiga því sambærilegar millivísanir einnig við hvað þau varðar; konungsbókhlaða gegnir í sumum löndum hlutverki landsbókasafns og/eða háskólabókasafns, annars staðar ekki.
[dæmi] Landsbókasafn Íslands, áður Stiftisbókasafn (Stiptsbókasafnið í Reykjavík)
|
[s.e.] |
amtsbókasafn, Kungliga biblioteket i Stockholm, Sverige, vísindabókasafn, rannsóknarbókasafn, ríkisbókasafn
|
|