|
[skilgr.] Mikið flóð, sem kemur í jökulá við það, að vatn, er safnast saman við jökul eða undir jökli, fær snögglega framrás.
[skýr.] Tildrög eru einkum með tvennu móti: 1. Vatn safnast í jökullón við jökulrönd, en kemst ekki brott fyrir jöklinum, fyrr en vatnsdýpi er orðið svo mikið, að vatnið nær að komast undir jökulstífluna. 2. Vatn safnast í geymi undir jökli vegna leysingar íssins af völdum jarðhita eða eldsumbrota. Það ryðst að lokum fram undan jöklinum.
|