|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
|
[danska] |
stavkirke
|
|
|
[enska] |
stave church
|
|
|
[íslenska] |
stafkirkja
kv.
|
|
[skilgr.] timburkirkjugerð á Norðurlöndum á miðöldum, byggð úr stafverki; einkennist af margbrotinni þakgerð og tréskurðarskreytingum, t.d. vafningsskrauti og drekahöfðum í stíl víkingatímans
[skýr.] Í Noregi hafa varðveist um 30 stafkirkjur og ein í Svíþjóð. Dæmi um s er kirkjan í Urnes í Noregi, byggð á 11. öld. Timburkirkjur á Íslandi voru byggðar úr stafverki áður en bindingsverk kom til. Dómkirkjurnar á Hólum og í Skálholti á miðöldum voru stafkirkjur en líktust meir stafkirkjum frá Vestur-Noregi, t.d. kirkjunni í Holtålen í Þrændalögum, og voru einfaldari að gerð en þekktustu norsku kirkjurnar S.e. kirkja
|
|
|
|
|