|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Myndlist
|
|
|
[íslenska] |
hellamálverk
|
|
[skilgr.] myndir málaðar á veggi og loft hella á forsögulegum tíma
[skýr.] h sýna einkum veiðidýr gerð með kolum og gulum og rauðum lit. Tilgangur h er ekki þekktur með vissu en gæti tengst trúarathöfnum.
Í Evrópu hafa h einkum fundist á NV-Spáni og SV-Frakklandi en þau má einnig finna í Afríku, Ástralíu, Asíu og Ameríku.
[dæmi] Þekktustu h eru í Altamira á Spáni og Lascaux í Frakklandi.
|
[sbr.] |
forsöguleg list
|
|
|
|
|
|