|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
|
[íslenska] |
veraldarvefur
kk. |
|
[skilgr.] Dreift upplýsingasafn á [lýðnetinu þar sem notuð er biðlaraþjónusta og ][stiklumiðlun.
] [skýr.] Veraldarvefurinn varð til í rannsóknarstofnun Kjarnorkurannsóknaráðs Evrópu (CERN) í Genf í Sviss. Notendum veraldarvefsins hefur fjölgað gífurlega síðan hann var opnaður árið 1991. Á veraldarvefnum eru skjöl, [valmyndir og ][atriðaskrár sett fram gagnvart notanda sem ][stikluhlutir í ][HTML-formi. ][Tenglar vísa á önnur skjöl með ][vefslóðum. Tækni sem beitt er í ][lýðnetinu á veraldarvefnum er einnig notuð í ][innri netum stofnana og fyrirtækja.
] |
[s.e.] |
atriðaskrá, HTML, innra net, lýðnet, skjal, stikluhlutur, stiklumiðlun, tengill, upplýsingasafn, valmynd, vefslóð
|
|
|
|
|
|