|
Hér er að finna allar skráðar upplýsingar um hugtakið. |
Úr orðasafninu Fornleifafræði
|
|
|
|
[íslenska] |
Ásubergsstíll
kk.
|
|
[skilgr.] Norrænn skreytistíll frá víkingaöld. Skrautið byggist upp á ýmiss konar dýrum og furðuskepnum, oft höfuðsmáum og með ólögulegan líkama. Oft togna útlimirnir í langa anga og vefjast dýrin þá hvert um annað og mynda mynsturheild eða net.
[skýr.] Ásubergsstíll tekur nafn sitt af útskornum munum úr tré sem fundust í Ásubergshaugnum á Vestfold 1903. Ásubergsstíll er fyrsti eiginlegi víkingastíllinn á Norðurlöndum og talinn hafa átt blómaskeið sitt fyrir árið 850. Stíllinn er náskyldur Borróstíl og eru þeir saman oft nefndir eldri víkingastíll.
[dæmi] Á Íslandi hafa einungis fundist tveir gripir í Ásubergsstíl, nælur frá Skógum í Flókadal, að líkindum úr [kumli] . Þær eru taldar frá fyrri hluta 9. aldar og eru nánar tiltekið af [Berdalsgerð].
|
[enska] |
Oseberg style
|
|
|
|
|
|
|